
HALLÓ allar NA deildir og félagar við stefnum á að fara ÖLL saman út að borða 16.MAÍ Kl.18 á Hard Rock Café! Hafa þarf samband við vefstjori@nai.is svo vitað sé hversu stórt borð skal panta, makar og börn velkomin! Látið orðið berast!!
HALLÓ allar NA deildir og félagar við stefnum á að fara ÖLL saman út að borða 16.MAÍ Kl.18 á Hard Rock Café! Hafa þarf samband við vefstjori@nai.is svo vitað sé hversu stórt borð skal panta, makar og börn velkomin! Látið orðið berast!!
Þá er komið að öðrum landsþjónustufundi ársins. Hann verður haldinn í risinu í Gula Húsinu kl 16:00 þann 18. maí. Nóg af lausum þjónustum í boði og hvet ég öll til að koma og amk kynna sér starfið sem á sér stað hjá okkur, hvort sem þú vilt skrá þig í þjónustu eða bara forvitnast. Öll eru velkomin og verður tekið vel á móti ykkur. Á landsþjónustufundum ræðum við ýmis mál sem tengjast samtökunum og sjáum um þau mál sem deildirnar sjálfar sjá ekki um.
Frekari upplýsingar er hægt að nálgast með því að smella HÉR eða senda póst á na@nai.is
Lausar þjónustur:
Landsfulltrúi
Vara-Landsfulltrúi
Formaður
Vara-Formaður
Formaður SOS
Ábyrgðaraðili AT-vinnuhóps
SOS fundur verður haldinn kl 17:00 laugardaginn 23. mars í risinu í Gula Húsinu.
SOS stendur fyrir Sjúkrahús Og Stofnanir og sér um mönnun funda á Vog og Krýsuvík ásamt umsjón með hjálparsíma.
Hægt er að mæta til að fá þjónustu á stofnun/vera með hjálparsímann eða bara til að vita hvernig þetta gengur fyrir sig.
Einnig er hægt að sækja um að vera með fund á stofnun eða með hjálparsímann með því að smella HÉR: nai.is/soslisti
Þá er komið að fundi landsþjónustu, hann verður kl 16:00 í ris Gula Hússins þann 24. febrúar.
Öll eru hvött til að mæta og kynna sér hvað gerist á bak við tjöldin og hvernig samtökin okkar starfa. Á landsþjónustufundum ræðum við hin ýmsu mál sem snerta samtökin í heild.
Öllum er velkomið að koma, hvort sem þau séu einungis forvitin eða vilja þjónusta.
Ein laus þjónusta:
-Vefstjóri
24. des. Aðfangadagur: Kl 14:00 í sal A
25. des Jóladagur: Kl. 21:00 í sal A
31. des Gamlársdagur: Fundur verður kl. 01:00 eftir miðnætti í risinu(1. jan)
1. jan Nýársdagur: Kl 01:00 í risinu og kl 21:00 í sal A
Gleðilega hátíð
Nýstofnaður vinnuhópur Almannatengsla heldur fund á Zoom þann 9. desember. Fundurinn er kl 15:00 og eru öll velkomin.
Almannatengsl sjá um að fræða almenning og hinar ýmsu stofnanir um störf NA.
Zoom:
Meeting ID: 2150024232
Passcode: 1953
Ef einhverjar spurningar vakna er hægt að senda email á at@nai.is
Þá er komið að landsþjónustufundi. Hann verður 11. nóvember kl. 4 í risinu í Gula, Tjarnargötu 20.
Landsþjónusta sér um öll þau mál sem deildirnar sjálfar sjá ekki um. Ýmisleg mál verða rædd og er öllum velkomið að taka þátt í þeim umræðum.
Mæli með að öll komi og kynni sér hvað fer fram á bakvið tjöldin og sjá hversu stórt batterí NA samtökin á Íslandi eru.
Það er laus þjónusta:
-Ritari
Hvort sem þú vilt koma í þjónustu eða ert bara forvitin/n/ð þá hvetjum við þig til að koma og tékka á þessu.
Frekari upplýsingar er hægt að nálgast HÉR
Hlökkum til að sjá þig!
Reynsla, styrkur og vonir, sunnudagsdeildin okkar hefur fært sig um sal í Gula Húsinu.
Nú er hann á 1. hæð í sal A kl 21:00.
Lesnir eru bæklingarnir okkar og umræðuefni út frá þeim, endilega mætið snemma og verið með!
Landsþjónustufundur verður haldinn kl 16:00 þann 9. september.
Fundurinn verður haldinn á 3. hæð í Gula Húsinu(risið).
Öllum er velkomið að koma og kynna sér þau störf sem Landsþjónusta sinnir, engin skylda er að vera í eða taka að sér þjónustu.
Þær þjónustur sem eru lausar eru:
-Ritari
-Vara-gjaldkeri
Fyrir frekari upplýsingar er hægt að senda email á na@nai.is eða skoða þessa síðu: https://nai.is/lands-og-svaedisthjonusta/