Ný vefsíða

Ný vefsíða NA samtakanna á Íslandi hefur verið sett í loftið.
Kosið var í nýja vefsíðunefnd á landsþjónustufundi Nóvember 2017 og tekin var ákvörðun að fara í vinnu við að setja á laggirnar nýja vefsíðu og skoða möguleikana á því að innleiða Bókalager inn í hana. Sú ákvörðun var staðfest á landsþjónustufundi í Janúar 2018.
Nú er Bókalager á vefnum og hægt er að skoða og panta undir „Lesefni og varningur“ hér að ofan.
Ennþá er greitt fyrir bækur og varning með millifærslu og hægt að velja hvort viðkomandi vill sækja næsta þriðjudag eða fimmtudag.

Vefstjórn tekur vel í allar ábendingar varðandi viðbætur og úrbætur sem gætu komið upp, svo ekki hika við að hafa samband á vefstjori@nai.is.