12 spor
Ef
þig langar í það sem við höfum að bjóða og ert reiðubúin(n) að leggja
eitthvað á þig til að öðlast það, þá ertu tilbúin(n) að stíga ákveðin
spor. Þetta eru
grundvallarreglurnar sem gerðu bata okkar mögulegan.
- Við viðurkenndum að við vorum vanmáttug gagnvart fíkn okkar, að líf okkar var orðið stjórnlaust.
- Við fórum að trúa því að máttur, okkur æðri, gæti gert okkur andlega heil að nýju.
- Við tókum þá ákvörðun að fela líf okkar og vilja umsjá Guðs, samkvæmt skilningi okkar á honum.
- Við gerðum leitandi og óttalaus siðferðisleg reikningsskil í lífi okkar.
- Við viðurkenndum fyrir Guði, sjálfum okkur og annarri manneskju nákvæmt eðli yfirsjóna okkar.
- Við vorum þess albúin að láta Guð fjarlægja alla þessa skapgerðarbresti.
- Við báðum Guð í auðmýkt að losa okkur við brestina.
- Við skráðum misgjörðir okkar gagnvart þeim sem við höfðum skaðað og urðum þess reiðubúin að gera þeim öllum yfirbót.
- Við bættum fyrir brot okkar milliliðalaust hvenær sem færi gafst, nema þegar það hefði skaðað þá eða aðra.
- Við héldum áfram að gera persónuleg reikningsskil og þegar út af bar
viðurkenndum við yfirsjónir okkar undanbragðalaust. - Við leituðumst við, með bæn og hugleiðslu, að styrkja vitundarsamband okkar við Guð, samkvæmt skilningi okkar á honum, og báðum aðeins um að fá að vita vilja hans og að öðlast máttinn til að framkvæma hann.
- Eftir að hafa orðið fyrir andlegri vakningu við að stíga þessi spor reyndum við að flytja fíklum þennan boðskap og fylgja þessum grundvallarreglum á öllum sviðum lífs okkar.