| Leitarvélin | Forsíða » Lesefni » Bækur » NA Bókin » Kafli 2 - Hvað er Narcotics Anonymous prógrammið?

ANNAR KAFLI

HVAÐ ER NARCOTICS ANONYMOUS PRÓGRAMMIÐ?

 

N.A. er hagnaðarlaus félagsskapur karla og kvenna sem áttu í miklum erfiðleikum vegna fíkniefnaneyslu. Við erum fíklar í bata sem hittumst reglulega til að hjálpa hvert öðru að vera edrú. Þetta er prógramm algers bindindis frá öllum fíkniefnum. Aðeins eitt skilyrði er fyrir inngöngu og það er löngun til að hætta neyslu. Við leggjum til að þú hafir opinn huga og gefir sjálfum þér tækifæri. Prógrammið okkar samanstendur af nokkrum reglum sem eru settar fram á svo einfaldan hátt að við getum farið eftir þeim í daglegu lífi okkar. Það mikilvægasta við þær er að þær virka.

Engar skuldbindingar fylgja N.A. Við tengjumst engum öðrum samtökum, engin inntöku- eða félagsgjöld þarf að greiða, engar yfirlýsingar þarf að undirrita, engin loforð þarf að gefa neinum. Við tengjumst engum stjórnmálasamtökum, trúfélögum eða lögreglu og erum ekki undir neins konar eftirliti. Allir geta gengið til liðs við okkur, óháð aldri, kynþætti, kynhneigð, trúfélagi, trúarbrögðum eða skorti á þeim.

Við höfum engan áhuga á því hvað þú notaðir mikið eða hver sambönd þín eru, hver fortíð þín er eða hvað þú átt mikið eða lítið, heldur aðeins á því hvað þú ætlar að gera í vandamáli þínu og hvernig við getum hjálpað þér. Nýliðinn er mikilvægasta manneskjan á hverjum fundi af því að við getum aðeins haldið því sem við höfum öðlast með því að gefa það áfram. Reynslan innan hópa okkar sýnir að þeir sem halda áfram að mæta reglulega á fundi okkar haldast edrú.

 

Narcotics Anonymous er félagsskapur karla og kvenna sem eru að læra að lifa án fíkniefna. Við erum hagnaðarlaust samfélag og engin inntöku- eða félagsgjöld þarf að greiða. Við höfum öll greitt aðild okkar dýru verði. Með þjáningu okkar borguðum við fyrir réttinn til að ná bata.

Þvert á allar væntingar erum við fíklar sem hittumst reglulega. Við miðlum heiðarlega af reynslu okkar og hlustum á sögur félaganna þar sem fluttur er boðskapurinn um bata. Loks skilst okkur að það er von.

Við nýtum okkur sömu aðferðir og hafa hjálpað öðrum fíklum í bata sem hafa lært í N.A. að lifa án fíkniefna. Reynslusporin tólf eru uppbyggileg leið sem gerir bata mögulegan. Meginmarkmið okkar er að vera edrú og að flytja fíklum sem enn þjást boðskapinn. Sameiginlegt vandamál okkar, fíknin, sameinar okkur. Með því að hittast, spjalla og hjálpa öðrum fíklum tekst okkur að vera edrú. Nýliðinn er mikilvægasta manneskjan á hverjum fundi af því að við getum aðeins haldið því sem við höfum öðlast með því að gefa það áfram.

Í Narcotics Anonyomous er margra ára reynsla af bókstaflega hundruðum þúsunda fíkla. Meðferðarlegt gildi þessarar persónulegu reynslu af öllum stigum sjúkdómsins og batans á sér enga hliðstæðu. Við deilum reynslu okkar fúslega með öllum fíklum sem vilja ná bata.

Boðskapur okkar um bata er byggður á reynslu okkar. Áður en við komum til samtakanna vorum við orðin örmagna af því að reyna að nota fíkniefni okkur að skaðlausu og velta því fyrir okkur hvað væri að okkur. Þegar við komum til N.A. uppgötvuðum við að við vorum í mjög sérstökum hópi fólks sem hafði þjáðst alveg eins og við og náð bata. Þegar það miðlaði fúslega af reynslu sinni öðluðumst við von fyrir okkur sjálf. Fyrst prógrammið virkaði fyrir þau myndi það virka fyrir okkur.

Eina skilyrðið fyrir inngöngu er löngun til að hætta neyslu. Við höfum séð prógrammið virka fyrir hvern einasta fíkil sem langaði af fullri einlægni og heiðarleika að hætta neyslu. Við þurfum ekki að vera edrú þegar við komum, en eftir fyrsta fundinn mælum við með því að nýliðinn komi aftur og komi þá edrú. Við þurfum ekki að bíða eftir of stórum skammti eða fangelsisdómi til að fá hjálp frá Narcotics Anonymous. Fíkn er ekki vonlaust ástand sem ekki er hægt að ná bata frá.

Við hittum fíkla eins og okkur sjálf sem eru edrú. Við fylgjumst með, hlustum og gerum okkur grein fyrir því að þeir hafa fundið aðferð til að lifa og njóta lífsins án fíkniefna. Við þurfum ekki að sætta okkur við takmarkanir fortíðarinnar. Við getum skoðað og endurskoðað gamlar hugmyndir okkar. Við getum stöðugt bætt gamlar hugmyndir okkar eða skipt þeim út fyrir nýjar. Við erum karlar og konur sem höfum uppgötvað og viðurkennt að við erum vanmáttug gagnvart fíkn okkar. Ef við notum töpum við.

Þegar við uppgötvuðum að við gátum hvorki lifað með fíkniefnum né án þeirra leituðum við hjálpar hjá N.A., frekar en að framlengja þjáningu okkar. Prógrammið gerir kraftaverk í lífi okkar. Við verðum nýtt fólk. Að vinna reynslusporin og vera í bindindi veitir okkur daglega lausn úr fangelsisvistinni sem við dæmdum okkur sjálf í. Okkur verður frjálst að lifa.

Við viljum að staðurinn þar sem við náum bata sé öruggur griðastaður, skjól fyrir utanaðkomandi áhrifum. Til verndar félagsskapnum gerum við þá kröfu að engin fíkniefni eða áhöld til fíkniefnaneyslu séu á fundum.

Okkur er algerlega frjálst að tjá okkur innan félagsskaparins, vegna þess að lögreglan kemur hvergi nærri. Á fundum okkar ríkir samkennd. Í samræmi við grundvallarreglur batans forðumst við að dæma, draga í dilka eða prédika hvert yfir öðru. Mæting er frjáls og aðild er ókeypis. N.A. veitir ekki ráðgjöf eða félagsþjónustu.

Á fundum okkar öðlumst við sjálfsmynd, von og hlutdeild hvert í öðru. Hjarta N.A. slær þegar tveir fíklar deila bata sínum hvor með öðrum. Það sem við gerum verður raunverulegt fyrir okkur þegar við deilum því með öðrum. Þetta á sér stað í meiri mæli á fundum okkar. Það er fundur þegar tveir eða fleiri fíklar hittast til að hjálpa hver öðrum að vera edrú.

Í upphafi fundar lesum við N.A. lesefni sem er aðgengilegt öllum. Á sumum fundum eru ræðumenn, sérstakt umræðuefni eða hvort tveggja. Lokaðir fundir eru fyrir fíkla eða þá sem halda að þeir eigi við fíkniefnavandamál að stríða. Opnir fundir eru opnir öllum sem kynnast vilja samtökum okkar. Erfðavenjurnar tólf standa vörð um andrúmsloft sem einkennist af bata. Við stöndum algerlega á eigin fótum með frjálsum samskotum félaganna. Við erum ekki tengd neinum öðrum, óháð því hvar fundir kunna að vera haldnir. Fundir gefa okkur tækifæri til að umgangast aðra fíkla. Það þarf aðeins tvo fíkla, umhyggju og hluttekningu til að halda fund.

Við leyfum nýjum hugmyndum að streyma inn í okkur. Við spyrjum spurninga. Við segjum frá því sem við höfum lært um að lifa án fíkniefna. Þótt grundvallaratriði reynslusporanna tólf kunni að virðast undarleg í fyrstu er það mikilvægasta við þau að þau virka. Prógramm okkar er aðferð til að lifa. Við lærum hve verðmætar andlegar meginreglur, eins og uppgjöf, auðmýkt og þjónusta, eru með því að lesa N. A. lesefni, mæta á fundi og vinna reynslusporin. Við finnum að líf okkar batnar jafnt og þétt ef við erum í bindindi frá öllum hug- eða skapbreytandi efnum og vinnum reynslusporin tólf til að viðhalda bata okkar. Að lifa samkvæmt prógramminu setur okkur í samband við mátt sem er æðri okkur sjálfum, lagar bresti okkar og leiðir okkur í að hjálpa öðrum. Þar sem rangindi hafa átt sér stað kennir prógrammið okkur fyrirgefningu.

Margar bækur hafa verið skrifaðar um eðli fíknar. Þessi bók fjallar um eðli batans. Ef þú ert fíkill og þessi bók hefur ratað í hendurnar á þér, gefðu þá sjálfum þér tækifæri og lestu hana.