| Leitarvélin | Forsíða » Lesefni » Bækur » NA Bókin » Inngangur

INNGANGUR

 

Þessi bók geymir samansafnaða reynslu félaga í Narcotics Anonymous. Þér er velkomið að lesa þessa bók og við vonum að þú ákveðir að taka þátt í því nýja lífi sem við höfum öðlast. Við höfum alls ekki fundið lækningu við fíkn. Við bjóðum aðeins upp á áætlun sem hefur sýnt sig að dugar til að ná bata frá degi til dags.

Í N.A. samtökunum fylgjum við prógrammi sem við fengum að láni hjá Alcoholics Anonymous. Milljónir manna hafa náð bata innan A.A. samtakanna, flestir voru þeir jafnvonlausir í áfengisfíkn sinni og við vorum í fíkn okkar. Við erum þakklát A.A. samtökunum fyrir að hafa kynnt okkur fyrir nýrri leið til að lifa.

Tólf reynsluspor Narcotics Anonymous, fengin að láni frá A.A. samtökunum, eru grunnurinn að bata okkar. Við höfum bara útvíkkað merkingu þeirra. Við fylgjum sömu leið með einni undantekningu: Við skilgreinum okkur sem fíkla með tilliti til allra hug- eða skapbreytandi efna. Alkóhólismi er of þröngt hugtak fyrir okkur, okkar vandamál er ekki eitthvað eitt ákveðið efni heldur sjúkdómur sem nefnist fíkn. Við trúum því að sem félagsskapur lútum við handleiðslu æðri vitundar og erum þakklát fyrir leiðbeiningarnar sem hafa gert okkur kleift að byggja á margreyndu prógrammi fyrir bata.

Við komum til Narcotics Anonymous eftir ýmsum leiðum og við trúum því að það sem við eigum sameiginlegt sé að okkur var um megn að sigrast á fíkn okkar. Vegna þess hve fíklarnir innan samtaka okkar eru fjölbreytilegir nálgumst við lausnina með almennu orðalagi í þessari bók. Við biðjum þess að við höfum verið nógu víðsýn og nákvæm til að allir fíklar sem lesi þetta öðlist sömu von og við öðluðumst.

Sé tekið mið af reynslu okkar trúum við því að allir fíklar, líka þeir sem ekki eru enn byrjaðir í neyslu, þjáist af ólæknandi sjúkdómi sem herjar á líkamann, hugann og andann. Við erum í vonlausri aðstöðu, eina lausnin er andlegs eðlis. Þess vegna fjallar þessi bók um andleg málefni.

Við erum ekki trúarsamtök. Prógramm okkar byggir á andlegum meginreglum sem hjálpa okkur að ná bata frá andlegu og líkamlegu ástandi sem virtist vonlaust. Á meðan þessi bók var í vinnslu báðum við stanslaust þessarar bænar:

 

"Guð, gefðu okkur visku til að skrifa samkvæmt guðlegri ráðsályktun þinni. Veittu okkur að þjóna þínum markmiðum. Gerðu okkur að þjónum vilja þíns og sameinaðu okkur án allrar eigingirni svo þessi bók megi verða þitt verk, ekki okkar – til þess að enginn fíkill, hvar sem hann er, þurfi að deyja ömurlegum dauðdaga úr fíkn sinni."

 

Allt sem á sér stað innan vébanda N. A. þjónustu verður að spretta af þörf fyrir að flytja fíklum sem þjást boðskapinn á skilvirkari hátt. Það var í þeim tilgangi sem þessi bók var skrifuð. Við verðum ávallt að vera þess minnug að sem félagar, hópar eða þjónustunefndir erum við aldrei í innbyrðis samkeppni. Við vinnum sameinuð og hvert í sínu lagi að velferð okkar og því að hjálpa nýliðum. Við höfum lært það af sárri reynslu að innbyrðis ágreiningur lamar félagsskapinn, hann gerir okkur ófær um að veita þjónustuna sem er nauðsynleg fyrir vöxt og viðgang samtakanna.

Við vonum að þessi bók hjálpi fíklum sem þjást að finna lausnina sem við höfum fundið. Markmið okkar er að vera edrú, bara í dag, og að bera boðskapinn um bata áfram.

NARCOTICS ANONYMOUS

 

Margar bækur hafa verið skrifaðar um eðli fíknar. Þessi bók fjallar fyrst og fremst um eðli batans. Ef þú ert fíkill og þessi bók hefur ratað í hendurnar á þér, gefðu þá sjálfum þér tækifæri og lestu hana!