FORMÁLI
"Ávöxtur kærleiksverka er uppskeran og hún kemur alltaf á réttum tíma ..."
Efni þessarar bókar byggir á persónulegri reynslu fíkla innan Narcotics Anonymous félagsskaparins. Grunntextinn er unninn upp úr "hvítu bókinni", Narcotics Anonymous. Fyrstu átta kaflarnir byggja á efnisflokkun hvítu bókarinnar og heita sömu nöfnum. Níunda kaflanum, Aðeins í dag, hefur verið bætt við sem og þeim tíunda, Meira verður afhjúpað. Hér á eftir er stutt saga bókarinnar.
Narcotics Anonymous samtökin voru stofnuð í júlí 1953 og var fyrsti fundurinn haldinn í suður Kaliforníu. Félögum fjölgaði í fyrstu lítið en fljótlega skutu samtökin rótum víða í Bandaríkjunum. Frá upphafi var ljóst að þörf var á bók um batann til að styrkja félagsskapinn. Hvíta bókin, Narcotics Anonymous, kom út árið 1962.
Lítil mynd var þó á félagsskapnum og á sjöunda áratug síðustu aldar áttu þau mjög erfitt. Félögum fjölgaði í fyrstu jafnt og þétt en þeim tók fljótt að fækka á ný. Þörfin fyrir skýrari markmið var ljós. N.A. samtökin náðu ákveðnum þroska árið 1972 þegar Heimsþjónustuskrifstofan (World Service Office (WSO)) tók til starfa í Los Angeles. Heimsþjónustan hefur fært félagsskapnum eininguna sem skorti og gert markmið samtakanna skýrari.
Fyrir tilstilli Heimsþjónustunnar hafa samtökin vaxið jafnt og þétt æ síðan. Nú hittast fíklar í bata á mörgþúsund fundum um öll Bandaríkin og fjölda annarra landa. Í dag þjónar Heimsþjónustuskrifstofan í raun og veru alheimssamtökum.
Narcotics Anonymous samtökin hafa lengi gert sér grein fyrir þörfinni fyrir grundvallarrit um fíkn – bók um fíkla eftir fíkla fyrir fíkla.
Þörfinni var mætt að einhverju leyti eftir stofnun Heimsþjónustunnar með því að gefa út bæklinginn N.A. tréð (The N.A. Tree), sem innihélt leiðbeiningar fyrir þjónustu. Í kjölfarið hafur fylgt ítarlegra lesefni um þjónustu, nú síðast Þjónustuhandbók N.A. (N.A. Service Manual).
Í þeirri bók er þjónustuskipan N.A. samtakanna skýrð, meðal annars Heimþjónustuþingið (World Service Conference (WSC)). Hluti Heimsþjónstuþingsins var síðan Lesefnisnefnd (Literature Committee). Vinnan hófst með stuðningi Heimsþjónustunnar (WSO) og þingsins.
Þar sem þörfin fyrir lesefni, einkum ítarlegan texta, jókst stöðugt varð lesefnisnefnd heimsþingsins til. Fyrsta lesefnisþingið var haldið í október 1979 í Wichita í Kansas og síðan fylgdu þing í Lincoln í Nebraska, Memphis í Tennessee, Santa Monica í Kaliforníu, Warren í Ohio og Miami á Florida.
Lesefnisnefnd heimsþingsins hefur safnað saman mörghundruð blaðsíðum af efni frá félögum og hópum alls staðar innan samtakanna. Þetta efni hefur verið flokkað, því hefur verið safnað saman, tekið sundur og sett saman aftur. Fjöldi svæðisfulltrúa hefur í samvinnu við lesefnisnefndina eytt mörgþúsund vinnustundum í efnið sem hér birtist á prenti. Mikilvægast er þó að allir þessir félagar hafa samviskusamlega leitast við að búa til texta sem einkennist af "hópsamvisku".
Samkvæmt nafnleyndarvenju samtakanna finnst lesefnisnefndinni við hæfi að koma á framfæri innilegu þakklæti til samtakanna í heild, einkum hinna fjölmörgu sem lögðu af mörkum efni í bókina. Okkur finnst þessi bók sameina hópsamvisku félagsskaparins og að allar hugmyndir sem fram komu birtist í henni í einhverri mynd.
Þessu riti er ætlað að vera leiðbeinandi fyrir alla fíkla sem leita bata. Sem fíklar þekkjum við kvöl fíknarinnar , en við þekkjum líka ánægjuna af batanum sem við fengum með hjálp Narcotics Anonymous samtakanna. Okkur finnst kominn tími til að deila bata okkar skriflega með öllum sem þrá það sem við höfum öðlast. Það er því við hæfi að tileinka þessa bók því að upplýsa alla fíkla um að:
Í DAG ÞARFTU ALDREI AÐ NOTA FRAMAR!
Þess vegna tileinkum við N. A. bókina kærleika okkar æðri máttar með þakklæti fyrir batann. Með því að þróa vitundarsamband við Guð þarf enginn fíkill sem þráir bata að deyja án þess að hafa fengið tækifæri til að öðlast betra líf.
Við erum aðeins dyggir þjónar og þjónum af kærleika,
Lesefnisnefnd Heimsþings Narcotics Anonymous
Við getum ekki breytt eðli fíkilsins eða fíknarinnar. Við getum hjálpast að við að breyta gömlu lyginni: "Eitt sinn fíkill, ávallt fíkill," með því að leitast við að gera batann aðgengilegri. Guð hjálpi okkur að þekkja muninn.