Þjónusta við Sjúkrahús og Stofnanir og N.A. félaginn
Ófáum félögum Narcotics Anonymous hefur þótt þjónusta við Sjúkrahús og
Stofnanir afar mikilvægur þáttur í persónulegu bataferli þeirra. þeir
félagar okkar, sem eru virkir í S & S þjónustu, eru afar mikilvægir
félagsskap okkar. Skuldbinding við S & S þjónustu er ein þeirra
fjölmörgu leiða sem hægt er að velja, til að tengjast þjónustu innan
N.A. og gerir okkur kleift að finnast hluti af félagsskapnum.
Við vitum að virk fíkn leiðir til fangelsunar, stofnanna og dauða.
Einnig, að megintilgangur N.A. samtakana er að bera boðskap batans til
fíkilsins sem enn þjáist. Það er því engin furða að það eitt að bera
boðskap N.A. batans á sjúkrahús og stofnanir skuli vera eitt af
forgangsverkum okkar. Félagar N.A. hafa stutt þessa trú dyggilega með
því að stofna Sjúkrahús og Stofnanir (S & S) nefndir víðs vegar um
heiminn.
Samt sem áður hafa einhverjir félagar innan N.A. verið tregir til að
tengjast S & S þjónustu, vegna þess að þeir hafa aldrei verið
lagðir inn, handteknir eða vistaðir á stofnunum. Með persónulega
reynslu okkar og viðeigandi undirbúning í farteskinu, erum við öll jafn
fær um að bera boðskap batans.
Þessum bæklingi er ætlað að vera stuttleg kynning á S & S þjónustu
Narcotics Anonymous og er ætlað að hvetja félaga til þess að bjóða sig
fram til þessa tækifæris til að þjóna.
Hvað er S & S fundur?
Tilgangur S & S fundar er að bera boðskap batans til fíkilsins sem
ekki enn hefur óhindraðan aðgang að hefðbundnum fundum innan Narcotics
Anonymous. S & S fundum, nema þeim sem eru haldnir á
langtímameðferðarstofnunum, er ætlað að kynna þeim fíklum sem sækja
fundina, grundvallaratriði N.A. prógrammsins.
Til að öðlast skýra mynd af S & S fundi, er mikilvægt að læra um
þjónustuskipan okkar. S & S fundur er venjulega þjónusta sem veitt
er af Svæðisþjónustunefnd eða undirnefnd S & S. Þessir fundir eiga
sér stað á sjúkrahúsum, meðferðarstöðum, fangelsum og meðferðarheimilum
fyrir ungt fólk. Fremur en að vera N.A. hópur, er mikilvægt að S &
S fundur sé alltaf haldinn í samráði við undirnefnd S & S.
Hvernig tek ég þátt?
Svæðisbundin S & S undirnefnd er miðstöð allrar skipulagningar og
ákvarðanna. Þetta er tilvalinn staður til að byrja! það fyrsta sem þú
gerir er að mæta á svæðisbundinn S & S undirnefndarfund og sitja
þar kynningu fyrir nýja og áhugasama meðlimi. Þessi kynning gerir
félögum okkar kleift að afla upplýsinga og vitneskju um þann edrútíma
sem krafist er, svo viðkomandi geti sinnt þjónustu innan S & S. Á
þessum fundum eru félagar einnig valdir til að bera boðskap okkar inn á
stofnanir. Venjulega er næsta skref fólgið í því að mæta á S & S
fund sem áhorfandi. Gegnum þetta ferli öðlast félagar grunnskilning á S
& S þjónustu og ákveða á hvaða hátt þeir vilja þjóna.
Hvers vegna á ég að taka þátt?
Þjónusta Sjúkrahúsa og Stofnanna býður fíklum upp á tækifæri til að
sýna þakklæti sitt, standa undir ábyrgð og deila boðskap N.A. án
nokkurra væntinga. Þetta er einnig afar mikilvægt verkfæri sem hjálpar
okkur að haldast edrú og fær okkur til að koma aftur. S & S
boðskapurinn er sá hinn sami og N.A. boðskapurinn: „Að hver fíkill,
hvaða fíkill sem er, geti hætt að nota fíkniefni, misst löngunina til
að nota og fundið nýja leið til að lifa.“ Gjöfin sem við deilum er von
og frelsi frá virkri fíkn gegnum prógramm Narcotics Anonymous. Allir
félagar N.A. sem langar að bera þennan boðskap eru hvattir til að
komast í samband við S & S þjónustuna. Það eru margar leiðir til að
þjóna innan Narcotics Anonymous og mörgum okkar hefur þótt S & S
þjónusta mest gefandi hluti af bata okkar. Við vonum að þessi bæklingur
muni hvetja þig til að tengjast S & S þjónustunni og uppskera þessi
verðlaun sjálfur!