| Leitarvélin | Forsíða » Lesefni » Bæklingar » Að haldast edrú úti í samfélaginu

Að haldast edrú úti í samfélaginu

Mörg okkar heyrðu fyrst boðskap Narcotics Anonymous meðan við vorum á spítala eða stofnun af einhverju tagi. Það að ganga gegnum umbreytingarnar frá slíkum stað og út í samfélagið er ekki auðvelt undir nokkrum kringumstæðum. Þetta á sér í lagi við þegar við stöndum frammi fyrir áskorunum þeim er fylgja breytingunum sem batinn hefur í för með sér. Mörgum okkar reyndist erfitt að fara gegnum fyrstu skeið batans. Að horfast í augu við þá möguleika sem lífið býður upp á og það án eiturlyfja, getur verið ógnvekjandi. En þau okkar sem komust gegnum fyrstu dagana fundu líf, sem er þess vert að lifa. Þessi bæklingur flytur boðskap vonar fyrir þá sem eru nú á spítala eða á stofnun og kennir að þú getur einnig náð bata og lifað frjálsu lífi. Mörg okkar hafa verið á sama stað og þú ert í dag. Við höfum reynt aðrar leiðir og ófá okkar féllu, sum okkar með þeim afleiðingum að ekki gafst annað tækifæri til að ná bata. Við höfum því ritað þennan bækling, þar sem við viljum deila með þér hvað virkaði fyrir okkur.

Ef þú hefur aðgang að fundum meðan þú ert á spítala eða inni á stofnun, getur þú byrjað að taka upp góða siði núna. Komdu snemma og farðu seint af fundum. Byrjaðu eins fljótt og unnt er að byggja upp sambönd við fíkla í bata. Ef félagar frá öðrum NA hópum mæta á fundina þína, biddu þá um símanúmerin þeirra og notaðu þau. Það að nota þessi símanúmer verður skrýtið í fyrstu, jafnvel asnalegt. En þegar haft er í huga að einangrun er eitt aðalsmerki sjúkdóms fíknarinnar, verður fyrsta símtalið að teljast gríðarlegt skref til framfara. Það er ekki nauðsynlegt að bíða eftir meiriháttar vandamáli sem kann að þróast, áður en þú hringir í einhvern innan NA. Flestir félagar eru mjög viljugir til að hjálpa á hvern þann hátt sem þeir geta. Þetta er líka rétti tíminn til að biðja einhvern NA félaga um að hitta þig þegar þú losnar. Ef þú þekkir nú þegar einhverja af þeim sem mæta á þá fundi sem þú kemur til með að sækja þegar þú losnar, hjálpar það einnig til að þér finnist þú hluti af félagsskap NA. Við höfum ekki efni á því að vera eða að líða eins og við séum utangarðs.


Að vera edrú úti í samfélaginu merkir að þú verður að taka til framkvæmda. Farðu á fund sama dag og þú losnar út. Það er mikilvægt að þú temjir þér að mæta á fundi á reglulegum grundvelli. Spenningurinn og ringulreiðin sem fylgja því að “sleppa út” hefur oftlega lokkað mörg okkar til að taka frí frá skyldum okkar, áður en við setjumst aftur niður til að skipuleggja daglegt líf. Þessi tegund réttlætinga hefur leitt mörg okkar aftur til notkunar. Fíkn er sjúkdómur sem tekur sér aldrei frí frá þróunarferlinu. Ef sjúkdómnum er ekki haldið í skefjum, vex hann einungis áfram. Það sem við gerum fyrir bata okkar í dag, tryggir okkur ekki bata á morgun. Það er misskilningur að ætla að góðar áætlanir sem byggja á því að koma aftur inn í NA eftir smávægilegan tíma muni vera nóg. Við verðum að framkvæma í samræmi við ákvörðun okkar og því fyrr, því betra.


Ef þú flytur í annað bæjarfélag þegar þú losnar út, þá skaltu biðja félaga í NA um fundarskrá og símanúmer NA í viðkomandi bæjarfélagi. Þeir geta hjálpað þér að komast í samband við NA hópa og félaga þar sem þú kemur til með að búa. Þú getur einnig fengið upplýsingar um fundi út um allan heim með því að skrifa til:

World Service Office
PO Box 9999
Van Nuys, CA 91409 USA

Trúnaðarmennska er lífsnauðsynlegur þáttur í NA prógrammi batans. Hún er helsta samskiptarásin, þar sem nýliðar geta nýtt sér reynslu þeirra NA félaga sem lifa eftir prógramminu. Trúnaðarmanneskjur geta sameinað einlæga umhyggju fyrir velferð okkar og deilt af reynslu sinni af fíkn, með traustri reynslu af bata innan NA Okkur hefur lærst að það er best að velja trúnaðarmanneskju af sama kyni. Veldu þér trúnaðarmanneskju, jafnvel tímabundna trúnaðarmanneskju, eins fljótt og hægt er. Trúnaðarmanneskja hjálpar þér að vinna Tólf Reynsluspor og Tólf Erfðavenjur Narcotics Anonymous.

Trúnaðarmanneskja getur einnig kynnt þig fyrir öðrum NA félögum, farið með þér á fundi og hjálpað þér að líða betur í bata þínum. Bæklingurinn okkar, Trúnaðarmennska, inniheldur allar nauðsynlegar upplýsingar um málið.

Ef við eigum að njóta afraksturs NA prógrammsins, verðum við að vinna Reynslusporin Tólf. Samhliða reglulegri mætingu, eru sporin grunnurinn í prógrammi batans frá virkri fíkn. Við höfum lært að það að vinna sporin í réttri röð og það að endurvinna þau í sífellu hindrar okkur í að falla aftur í virka fíkn og þeirri eymd sem það hefur í för með sér.

NA býður upp á afar fjölbreytilegt lesefni. Litli Hvíti Bæklingurinn og Grunntextinn okkar, Narcotics Anonymous, innihalda meginreglur batans innan félagsskaps okkar. Kynntu þér prógramm okkar með því að lesa bækurnar okkar. Það að lesa um batann er mikilvægur þáttur í prógrammi okkar, sérstaklega þegar enginn fundur eða annar félagi innan NA er innan seilingar. Mörgum okkar hefur fundist það eitt að lesa bókmenntir NA á hverjum degi hjálplegt og slíkt hefur hjálpað okkur að viðhalda jákvæðu hugarfari og hefur haldið athygli okkar vakandi í prógramminu.

Þegar þú byrjar að fara á fundi, skaltu tengjast hópunum sem þú sækir. Það að tæma öskubakka, raða stólum, hella upp á kaffi, að þrífa eftir fundinn – öllu þessu þarf að sinna svo hópurinn starfi rétt. Það að takast á slíkar skyldur er nauðsynlegur þáttur í batanum og hjálpar okkur að andspæna utangarðstilfinningar sem geta læðst upp að okkur. Slíkar skyldur, hversu lítilvægar sem þær virðast, geta tryggt aðsókn á fundi, þegar löngunin til að mæta, verður minni en þörfin á að mæta.

Það er aldrei oft snemmt að byggja upp persónulegt prógramm daglegra framkvæmda. Það að framkvæma daglega, er okkar leið til að taka ábyrgð á batanum. Í stað þess að nota fyrsta fíkniefnið, gerum við þess í stað:

  • Ekki nota, hvað sem gerist
  • Farðu á fund
  • Biddu Æðri Mátt þinn að leiða þig edrú í gegnum daginn
  • Hringdu í trúnaðarmanneskjuna þína
  • Lestu í bókmenntum NA
  • Talaðu við aðra fíkla í bata
  • Notaðu Tólf Reynsluspor Narcotics Anonymous

Nú þegar við höfum rætt þá hluti sem við ættum að gera til að haldast edrú, ættum við einnig að ræða um þá hluti sem við þurfum að forðast. Á NA fundum heyrum við oft að við verðum að breyta lífsháttum okkar. Þetta merkir að við notum ekki fíkniefni, hvað sem gengur á! Við höfum líka áttað okkur á því að við höfum ekki efni á því að fara reglulega á bari og skemmtistaði eða umgangast fólk sem notar fíkniefni. Þegar við leyfum okkur að umgangast gamla kunningja og staði, hættum við á fall. Þegar að sjúkdómi fíknarinnar kemur, erum við algerlega vanmáttug. Þetta fólk og þessir staðir gerðu okkur aldrei kleift að vera edrú áður. Það væri fáránlegt að halda að hlutirnir verði eitthvað öðruvísi núna.