| Leitarvélin | Forsíða » Landsþjónusta » Skemmtinefnd
Skemmtinefnd

Dansiböll, lautarferðir, útilegur, sérstakir ræðumannafundir – þessum uppákomum og fleiri er komið á laggirnar á vegum undirnefndar Svæðisþjónustu. Uppákomur sem þessar geta vakið félaga okkar til aukinnar vitundar um eðli samfélagsins og samstöðu N.A. samtakanna, jafnframt því sem þær sjá Svæðisþjónustu fyrir aukreitis tekjum. Ávallt skyldi þó hafa í huga að uppákomur sem þessar eru hannaðar til að efla frumtilgang N.A. samtakanna, ekki til að koma í stað framlög stakra N.A. hópa til styrktar Svæðisþjónustu sem greiðir fyrir þjónustu undirnefnda.

Fáeinar athugasemdir verður að gera varandi réttmæti skráninga sem tengjast uppákomum innan N.A. Flestar uppákomur sem undirnefndir N.A. samtakanna standa fyrir eru auglýstar með upplýsingaritum sem innihalda upplýsingar um næstu uppákomu þeirra innan N.A. hópa á viðkomandi svæði. Ef upplýsingarit undirnefndar þinnar ber eitt af N.A. merkjunum sem sjá má hér að neðan, ætti smátt R með hring utan (það lítur svona út: ® ) að birtast til hægri við merkið. Þetta merki sýnir að merkið er skrásett vörumerki N.A. samtakanna á heimsvísu og þetta kemur í veg fyrir að merki okkar sé misnotað utan félagsskaparins. Ef þörf er á frekari upplýsingum, vinsamlegast lesið handbókina Internal Use of NA Intellectual Property, sem hægt er að panta hjá Alþjóðaskrifstofu N.A. samtakanna.

Hér eiga að koma þrjú NA logo – sjá bækling um Local Guide

Sumar uppákomur sem undirnefndir hafa staðið fyrir, innihalda tombólur eða hlutaveltur af einhverju tagi, annað hvort til að fjármagna aðrar uppákomur eða sem aðskildar fjáraflanir. Taka má fram að í mörgum fylkjum í Bandaríkjunum og fjölmörgum öðrum löndum fellur slíkt undir fjárhættuspil og er sem slíkt, ólöglegt. Uppákomur sem undirnefndir setja á laggirnar verður að skoða sérstaklega í hverju tilfelli, með tilliti til þess hvort slík hlutavelta, sérstaklega tombólur eða happdrætti, falla undir hagsmuni einstaklinga eða hvort slíkt getur átt við andlegar meginreglur sem fjalla um frjáls framlög einstaklinga sem Sjöunda Erfðavenjan boðar.

Athygli skal vakin á því að hér á Íslandi er við störf Skemmtinefnd og gegnir nefndin margvíslegum störfum og heldur jafnframt utan um allar uppákomur og afþreyingu á vegum á N.A. samtökunum á Íslandi. Til að afla þér frekari upplýsingar um þjónustu Skemmtinefndarinnar, eða hafir þú tillögur að skemmtidagskrá fyrir Skemmtinefndina, bendum við vinsamlegast á netfang Svæðisþjónustu N.A. á Íslandi.
nai@nai.is

Einnig er hægt að sækja upplýsingar á landsþjónustufundi NA samtakanna á íslandi, sen eru haldnir 2 og 4 laugardag hvers mánaðar, í Gula Húsinu við tjarnargötu, kl. 17:00

Öllum áhugasömum meðlimum N.A. á Íslandi er velkomið að sitja fundinn.