Sérverkefnanefndir
Stundum koma upp spurningar innan Svæðisþjónustu, jafnvel sérstök verkefni sem falla ekki undir neina ríkjandi starfssemi undirnefnda. Jafnvel er Alþjóðaskrifstofa N.A. samtakanna um þær mundir að undirbúa útgáfu á nýju lesefni og viðkomandi svæði hefur verið beðið að afla upplýsinga frá meðlimum sínum. Kannski koma meðlimir upp með nýja hugmynd að N.A. tengdu lesefni sem þeir vilja þróa betur, áður en þeir afhenda Alþjóðaskrifstofu hugmyndina fullgerða. Stundum standa hópar á viðkomandi svæði frammi fyrir erfiðleikum í tengslum við staði til að halda fundi sína og vilja að Svæðisþjónusta beiti kröftum sínum fyrir því að leysa málið. Eða kannski þykir nefndinni kominn tími til að þróa sinn eigin leiðarvísi. Í slíkum tilfellum getur Svæðisþjónusta skipað sérstaka nefnd, Sérverkefnanefnd, til að vinna málið.
Sérverkefnanefndir eru settar upp í sérstökum tilgangi og hafa afmarkaðan líftíma. Þegar nefndin hefur lokið störfum sínum, er hún leyst upp. Til að stofna Sérverkefnanefnd, ætti Svæðisþjónustan að skilgreina sérstaklega hver tilgangur nefndarinnar er, hvaða ábyrgðarsvið og efni hún hefur, og hversu langan tíma verkið ætti að áætla. Þegar það liggur fyrir skipar formaður Svæðisþjónustu annað hvort fulla nefnd til starfans eða einungis formann nefndarinnar, sem svo setur saman nefndina þegar tími er kominn til þess. Þegar Sérverkefnanefndin hefur lokið störfum sínum, er nefndin leyst upp.
Athygli skal vakin á því að starfandi sérverkafnanefndir á vegum N.A. samtakanna í dag þjónusta heimasíðu og undirbúning fyrir ráðstefnur. Við leitum stöðugt nýrra og skemmtilegra verkefna til að ýta úr vör. Þá tökum við alltaf fagnandi mót nýjum verkefnum sem falla undir Fimmtu Erfðavenju okkar; en við höfum aðeins það meginmarkmið að bera boðskap batans til fíkilsins sem enn þjáist. Hafir þú áhuga á að koma á laggirnar slíkri nefnd vegna tilfallandi sérverkefna á vegum samtakanna, eða hafir þú hugmynd að sérverkefnum á vegum N.A. á Íslandi, bendum við þér á að hafa samband við Svæðisþjónustu N.A. á Íslandi.
Netfang Svæðisþjónustunefndar er nai@nai.is