| Leitarvélin | Forsíða » Landsþjónusta » Almannatengslanefnd

Almannatengslanefnd

Almenn markmið undirnefndar Almannatengslanefndar á hvejru svæði er að upplýsa fíkla og aðra meðlimi samfélagsins um möguleika á bata í Narcotics Anonymous. Þjónusta á vegum undirnefnda A.T. er afar mismunandi eftir svæðum. Einfaldasta form þjónustu sem A.T. stendur fyrir er útgáfa og dreifing auglýsingarita út í samfélagið, þar sem kemur fram að N.A. sé innan seilingar og að frekari upplýsingar sé hægt að nálgast, annað hvort með því að hringja í svæðisbundið númer N.A. samtakanna eða með því að mæta á N.A. fund. Þegar A.T. nefndir fara að taka á sig fastari mynd, sér nefndin oft fyrir almennum kynningarfundum sem haldnir eru fyrir meðlimi úti í samfélaginu, dreifing og hönnun auglýsinga í útvarpi og sjónvarpi, jafnframt því sem nefndin svarar fyrirspurnum frá almenningi.

Sumar A.T. nefndir skipa í aðskilda þjónustuhópa, sem eru kallaðir S.F.S. (skammstöfun fyrir Samskipti við Fagmenn í Samfélaginu) til að kynna enn fremur samskipti N.A. samfélagsins við fagmenn í meðferðargeiranum. Hægt er að nálgast handbókina A Guide to Public Information hjá svæðisbundnum A.T. nefndum eða með því að skrifa til Alþjóðaskrifstofu N.A. samtakanna, en þar koma fram nákvæmari upplýsingar um hvernig á að sinna fjölmörgum skyldum sem miða allar að því að upplýsinga almenning betur um Narcotics Anonymous.

Mörg verkefni sem snúast um tengsl við almenning þjóna beinlínis þeim tilgangi að hvetja fólk til að hringja í svæðisbundið númer N.A. samtakanna til að fá frekari upplýsingar um N.A. samtökin. Vegna náinna tengsla A.T. og Símanefndar, getur þessum nefndum oft verið hjálplegt að styrkja samskiptin sín á milli. Sumar Síma- og A.T. nefndir hafa fyrir ófráviðvíkjanlega reglu að senda einn eða tvo meðlimi nefndarinnar á fundi hverrar annarrar, til að samhæfa samskiptin enn betur milli þeirra nefnda. á sumum svæðum rekur ein og sama nefndin símalínu og almannatengslastarf N.A. samtakanna.

Athygli skal vakin á því að hér á Íslandi er við störf A.T. nefnd og gegnir nefndin margvíslegum störfum við kynningar á N.A. samtökunum á Íslandi. Til að afla þér frekari upplýsingar um þjónustu A.T. nefndarinnar, eða óskir þú eftir að nefndin kynni þjónustu sína fyrir starfssemi þinni, bendum við vinsamlegast á netfang Svæðisþjónustu N.A. á Íslandi.

Einnig er hægt að sækja upplýsingar á landsþjónustufundi NA samtakanna á Íslandi, sem er haldinn 2. laugardag hvers mánaðar, í Gula Húsinu við Tjarnargötu, kl. 17:00

Öllum áhugasömum meðlimum N.A. á Íslandi er velkomið að sitja fundinn.