Svæðisþjónustufundur þann 12. nóvember 2005
- Framvegis verður hægt að nálgast nótur frá SNAR fundum á vefnum, settur var saman póstlisti svo að hægt verði að láta meðlimi Svæðisþjónustu vita þegar nótur eru komnar á netið
- Fjárhagsstaða snar hefur sjaldan verið betri en hún er kr. 105.389
- Spurning hvort vanti fundarskrár í einhverjar deildir, lítið hefur selst af nýju fundarskránum.
- Þeir kaflar sem búið er að þýða úr NA bókinni er hægt að fá á vefnum. En restin af bókinni ætti að koma þangað fyrir áramót. en þá er aðeins eftir að fá þessa þýðingu samþykta af WSO. Bæklingurinn "Hópurinn" er einnig þýddur og kominn á vefinn.
- S.O.S nefnd hefur ekki mætt síðan fulltrúar hennar tóku við embætti. eitthvað virðist skipulag vera í ólestri þar, því stofnanir hafa verið að hringja í neyðarsíman og senda vefpóst þarsem beðið er um að einhver komi og haldi fund.
- Það kosta um 2000kr á mánuði að halda uppi neyðarsímanum, þau útgjöld þykja eðlileg og má beina þeim beint til gjaldkera SNAR.
- Það vantar nýjan formann Bókanefndar. Lager bókanefndar er í þremur pörtum eins og er. Heima hjá Ritara, formanni og varaformanni SNAR.
- Upplýsingar um SNAR og gögn fyrir undirnefndir og deildir er hægt að nálgast á vefsvæði samtakanna. Vefsíðan er undir stöðugum betrumbótum og stöðugt er verið að bæta við efni á hana.
- Ráðstefnunefnd ætlar að halda styrktarskemmtun 3 desember á L.A. kaffi. Vantar styrk fyrir leigu á húsnæðinu, um 10þús krónur. Gæti þurft skemmtileyfi.
- Selfossdeild biður Svæðisþjónustuna um styrk fyrir lyklakippum og bæklingum. Samþykkt var að gefa 5 stykki af öllum íslenskum bæklingum og lyklakippum. Að auki 5 lyklakippur til viðbótar af: 24 stunda, 30 daga, 60 daga og 90 daga.
- Samþykkt að fresta kosningu á nýjum formanni Bókanefndar. Formaður og gjaldkeri ætla að safna saman lagernum og hafa bókarnefndarmálin á hreinu fyrir næsta svæðisþjónustufund.
- Einróma samþykkt að kosnir verði nýjir fulltrúar SoS og núverandi fulltrúar látnir vita. Nýr formaður SoS er Ágústa, varaformaður er Simmi.