Svæðisþjónustufundur þann 08. október 2005
- Ný NA deild hefur verið stofnuð á selfossi. Fundir eru kl 20:30 á þriðjudögum
- Ný deild hefur verið stofnuð á þriðjudögum kl 14:00 í Gula Húsinu. Enginn fulltrúi þeirrar deildar mætti á svæðisþjónustu og er ekki vitað hvort sú deild sé með svæðisþjónustufulltrúa.
- Nýr Gjaldkeri ætlar að eyða reikningi svæðisþjónustu og búa til nýjan með sama reikningsnúmeri en annari kennitölu.
- Tónleikar skemmtinefndar fóru vel af stað. Eigandi tónleika staðarins var sáttur og þykir grundvöllur til að halda aðra tónleika. Hagnaður af tónleikum til svæðisþjónustu var 17300kr, þegar frádregin var húsaleiga 1000kr. Ágústu vantar pening fyrir nótu/kostnaði.
- Sunnudagsdeild hefur ákveðið að bæta við stöðu heilsara hjá sér sem býður fólk velkomið á NA fund.
- Nýr svæðisþjónustufulltrúi mánudagdeildar er Svafar.
- Nokkrir fulltrúar frá NA fóru á ráðstefnu hjá SÁÁ til að kynna samtökin. Okkur var gefin frekar lítill fyrirvari, um sólarhring. En kynningin heppnaðist mjög vel, mæting var góð og vakti kynningin athygli og hrifningu gesta.
- Þýðinganefnd hefur ákveðið að leggja allar þýðingar á bæklingum til hliðar til þess að geta einbeitt sér að þýðingu bókarinnar.
- Það vantar inneign inn á neyðarsíman, er komin niður í 100kr. Ágústa hefur ákveðið að gefa rafhlöðuna sem hún keypti fyrir neyðarsíman.
- Bókanefnd er að gera pöntun uppá um 40 þús, enda lagerinn nánast búinn. Verða pantaðir um 1200 bæklingar á íslensku.
- Það stendur til að halda áfram að bæta vefsíðu samtakanna, bæta útlit síðunnar og innihald í samstarfi við Þýðinganefnd. Stendur til að skipurit Svæðisþjónustu verði hægt að nálgast á síðunni. Lesefni og verkefni verða fljótlega sett inn á FTP server svo að meðlimir samtakana geti nálgast öll þau verkefni og þýðingar sem eru til hjá Þýðingarnefnd.
- Tillaga samþykkt með 9 atkvæðum móti 0 að stofna Ráðstefnunefnd, 3 sátu hjá.
- Ási er sjálfkjörin formaður Ráðstefnunefndar þarsem ekkert mótframboð eða mótmæli voru við framboði hans. Hafrún verður varaformaður.
- Bæklingurinn The Group verði þýddur og settur á vefsíðu samtakanna til að þjónustufulltrúar deilda geti séð starfslýsingu sinnar þjónustu