NA eru félagasamtök sem rekin eru án hagnaðarsjónarmiða, samfélag karla og kvenna sem hafa átt í miklum erfiðleikum með fíkniefni. Við erum fíklar á batavegi sem hittast reglulega til þess að hjálpa hver öðrum að halda sér hreinum af fíkniefnum. Við krefjumst engra félagsgjalda eða aðgangseyris. Eina skilyrðið fyrir inngöngu er löngunin til þess að hætta í neyslu.

NA fundir eru fyrst og fremst hugsaðir fyrir fíkla eða þá sem halda að þeir eigi í vandræðum með fíkniefni. Opnir fundir eru hins vegar hugsaðir fyrir þá sem vilja kynna sér starf samtakanna, s.s. aðstandendur, sérfræðingar o.fl. Sjá yfirlit yfir alla NA fundi